Hér notum við Ballantine-viský í staðinn fyrir romm og þá einnig púðursykur í staðinn fyrir hrásykurinn. Uppskriftin kemur frá Vegamótum.
3 cl Ballantine’s
3 tsk púðursykur
6-8 fersk myntublöð
3-4 limesneiðar
Merjið saman púðursykur, lime, viský og myntu. Fyllið glasið af muldum klaka. Toppið með sódavatni eða Sprite eftir smekk.