Beikon gefur pizzunni gott bragð og passar vel við rjómaostinn og paprikurnar sem hér eru notaðar með.
- Einn skammtur pizzadeig
- 1 lítil rauð paprika eða hálf stór
- ca 100 g pancetta eða beikonsneiðar
- rjómaostur með hvítlauk
- mozzarella, rifinn
- tómatapassata
- óreganó
- Skerið paprikuna í litla strimla.
Fletjið út deigið. Þekjið með tómatapassata og sáldrið rifnum osti yfir. Kryddið með óreganó. Dreifið paprikustrimlunum yfir og þekjið með beikonsneiðum. Setjið um teskeiðsfylli af hvítlauksrjómaosti á nokkrum stöðum á pizzunni.
Bakið við 220-250 gráður þar til botninn er orðinn stökkur, ca 10 mínútur.