Stonewell Shiraz 2008

Stonewell er toppvínið frá Peter Lehmann og jafnframt með betri Shiraz-vínum Ástralíu. Þrúgurnar sem notaðar eru í Stonewell koma af mjög gömlum vínvið í vesturhluta Barossa og eru sumar plönturnar meira en hundrað ára gamlar.

Þetta er magnað og mikið vín, dökkt, nær svart á lit með fjólubláum tónum. Angan krydduð með mössuðum, þroskuðum ávexti í bland við lakkrís, mynda kókos og dökkt súkkulaði. Vínið er þétt í sér með kröftugum tannínum, sem gefa því líf og snerpu og þessa miklu dýpt sem fæst ekki nema með þrúgum af mjög gömlum vínvið.

Njótið þessa víns með vel hanginni steik, nauti eða lambi eða þá kröftugri villibráð.

6.199 krónur.

Deila.