Amarone er toppurinn á vínunum frá Valpolicella-héraðinu utan við Verona á Ítalíu. Þrúgurnar eru þær sömu og í hefðbundnum Valpolicella en í stað þess að pressa þær strax eftir tínslu eru þrúgurnar sem notaðar eru í Amarone-vínin þurrkaðar í um þrjá mánuði.
Sartori Amarone 2008 hefur angan af trönuberjum, kirsuberjum og dökku súkkulaði, nokkuð eikað. Það hefur mjúka, þægilega áferð, ferska sýru og ágætis lengd. Ekki stærsta Amarone-vínið í búðunum en það langódýrasta.
3.750 krónur.