Þetta hvítvín kemur frá Búrgund í Mið-Frakklandi og líkt og ávallt á þeim slóðum er þrúgan sem notuð er Chardonnay.
Vínhús Francois d’Allaines er ekki stórt en þetta er vandaður og góður framleiðandi sem hefur boðið vín sín á íslenska markaðnum undanfarin ár.
Töluverður sítrus og ferskjur, rjómakennt og mjúkt. Þykkt og feitt með góðri sýru og lengd.
Með réttum á borð við humarsúpu.
3.493 krónur