Les Bartelles er toppvínið frá svissnesku hjónunum Peter Wildbolz og Christu Derungs sem stofnuðu Mas Du Soleilla í Suður-Frakklandi fyrir um áratug. Yndislegt vín sem er að uppistöðu Syrah, mjúkur, þægilegur og kryddaður ávöxtur, kirsuber, rifsber og kanilstöng í nefi, örlítil vanilla. Fínlegt, kvenlegt og heillandi, mild sýra og mjúk tannín umlykkja ljúffengan ávöxtinn.
4.789 krónur.