Marengskökur eru alltaf vinsælar og þessi marssósukaka er frábær í lok máltíðar eða í saumaklúbbinn.
Botnarnir
- 4 eggjahvítur
- 160 g sykur
- 80 g púðursykur
- 55 g Rice Krispies
Stífþeytið eggjavhviturnar, sykurinn og púðursykurinn . Bætið síðan Rice Krispies varlega út í. Setjið í 2 form. Einnig er hægt að teikna hring á bökunarpappir og móta botnanna í þeim.
Bakist í ofni í 1 klukkustund við 150 gráður. Opnið þá ofninn og leyfið botnunum að kólna inni í ofninum.
Á milli botnanna:
- 2,5 dl rjómi
- 3,5 dl 18 % sýrður rjómi
- jarðaber til skreytingar og til að setja út í rjómann
Þeytið rjómann og blandið síðan saman við sýrða rjómann. Bætið jarðarberjunum saman við. Hér má líka leika sér svolítið og gefa hugmyndafluginu lausan tauminn, það er hægt að setja græn epli, bláber, brómber, hindber eða hvað sem hugurinn girnist í staðinn fyrir jarðarberin.
Marssósa:
- 3 marsstykki
- 50 g dökkt súkkulaði
- 4 msk rjómi
Bræðið saman á vægum hita í þykka sósu.