Kalifornískar kótilettur

Hugmyndin að þessari uppskrift er komin frá norðurhluta Kaliforníu, nánar tiltekið er innblásturinn sóttur til Alice Waters sem lagði grunn að Kaliforníumatreiðslunni með stað sínum Chez Panisse  í Berkeley.

Þessi réttur byggist á því að grilla kryddjurtafyllta tómata og rauðlauk sem mynda síðan grunninn í pastasósu sem við berum fram með lambi eða nauti. Þetta er fullkomið með safaríkum íslenskum lambakótilettum en lambafile eða jafnvel ribeye af nauti njóta sín ekki síður vel í þessu samhengi.

En þetta þarf til að byrja með:

  • 6 stórir tómatar
  • 2 rauðlaukar
  • 2 lúkur af fersku óreganó og/eða marjoram
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 2 sneiðar beikon
  • ólífuolía
  • salt og pipar
  • 500 g Tagliatelle eða Spaghetti

Skerið tómatana í tvennt og hreinsið innan úr þeim. Skerið rauðlaukana í um hálfs sentimetra þykkar sneiðar.

Penslið tómatana og lauksneiðarnar með ólívuolíu. Saltið og piprið.

Saxið tvær vænar lúkur af óregano og/eða marjoram. Ef þið ræktið kryddjurtirnar sjálf þá er núna frábær uppskerutími og um að gera að nota blómin bæði af óreganó og marjoram með.

Fyllið tómatana af söxuðum kryddjurtum. Setjið á grillið. Setjið lauksneiðarnar á grillbakka og á grillið.

Þegar tómatarnir eru orðnir vel mjúkir er gott að klemma þá saman með grilltöng og snúa þeim á hliðina og síðan eftir nokkrar mínútur á hina hliðina. Skellið þeim síðan upp á bakkann með rauðlauknum.

Skerið beikonsneiðarnar í litla bita og saxið hvítlaukinn fínt. Hitið olíu í þykkbotna potti og bætið við hvítlauk og beikoni. Steikið í nokkrar mínútur og passið upp á að hvítlaukurinn fari ekki að verða brúnn.

Takið tómatana og laukinn af grillinu og bætið út í hvítlaukinn og beikonið í pottinum. Veltið um á meðalhita í nokkrar mínútur. Smakkið og bætið við salti og pipar ef þarf.

Sjóðið pastað. Bætið saman við tómatamaukið í pottinum.

Grilliið kjötið. Gott er að velta því  upp úr ólívuolíu með pressuðum hvítlauk og smá rósmarín auk salti og pipar áður en það er grillað.

Berið kjötið fram með pastanu. Það er mjög gott að hella aðeins af hágæða ólívuolíu yfir pastað rétt áður en það er borið fram. Það þarf í sjálfu sér ekki Parmesan-ost með þessu – en það skaðar heldur ekki að hafa hann sem valkost á borðinu.

Gott Nýjaheimsrauðvín smellur að þessu. Beint í mark er Montes Alpha Cabernet Sauvignon.

 

 

 

 

Deila.