Santa Digna er vínhús Spánverjans Miguel Torres í Chile og var það vínhús sem ruddi brautina fyrir nýja tækni í víngerðinni þar.
Þetta er ferskt og þægilegt hvítvín úr þrúgunni Sauvignon Blanc. Skörp angan, grösug í bland við hitabeltisávexti, sítrusbörkur, mangó, melónur og ananas og melónur. Milt og ferskt í munni með þægilegri sýru. Ágætis Nýja-heims Sauvignon Blanc.
2.190 krónur. Góð kaup.