Það er ekki bara hamborgarinn sjálfur sem skiptir máli heldur allt í kringum hann. Þessi hamborgarasósa einkennist af blöndu af papriku og chili og við bættum síðan líka smá reyktri papriku í sjálfan borgarann. Það er síðan auðvitað lykilatriði að hafa alvöru heimabökuð hamborgarabrauð með.
Hamborgararnir
- 600 g gott nautahakk
- 1 msk reykt paprika (smoked paprika)
- salt og pipar
Blandið saman og mótið í fjóra 150 gramma borgara.
Papriku og chili-sósa
- 1 dós sýrður rjómi 10%
- 1 rauð paprika, skorin fínt í litla teninga
- 1 dl Heinz Chli Sauce
- 3 pressaðir hvítlauksgeirar
- 1 tsk reykt paprika
- 1/4-1/2 tsk Tabasco
- salt og pipar
Blandið öllu saman í skál. Þið ráðið hvað þið setjið mikið af Tabasco út í en það þarf meira en einn dropa.
Grillið borgarana. Þegar þeim er snúið við er tilvalið að skella smá osti ofan á.
Skerið brauðin í tvennt. Setjið rauðlauk , tómata og salatblöð á brauðbotninn. Það er líka gott að smyrja hann með smá Dijon-sinnepi. Þá kemur borgarinn og síðan vænn skammtur af papriku-chili-sósunni.
Við mælum með góðu nýja-heimsrauðvíni með þessum borgara. T.d. góðu Cabernet Sauvignon og Malbec-víni frá Chile á borð við Montes Twins.
Fullt af góðum hamborgarauppskriftum í viðbót má svo finna hér.