Roda I 2004

Bodegas Roda í bænum Haro í Rioja er ungt vínhús sem byggt var upp frá grunni eftir stofnun 1987 í stað þess að byggja á gamalgrónum ekrum. Markmiðið var að gera vín í hæsta gæðaflokki og var gerð mikil leit að svæðu á undirsvæðunum Rioja Alta og Rioja Baja þar sem hægt væri að finna kjöraðstæður.

Í spænsku vínpressunni er Roda nú alla jafna flokkað sem eitt af bestu vínhúsum landsins og þegar við bætist að árgangurinn 2004 var frábær í Rioja er ekki að spyrja að leikslokum. Roda 2004 er einfaldlega hörkuvín. Kraftur æskuáranna er farinn að víkja fyrir byrjandi þroska og dýpt, eikin og tannín að mildast.

Í nefi mokka og ristaðar hnetur og núggat í bland við kryddaðan ávöxt.  Slétt og glansbónað. Eins og hágæða Bordeaux í öllum stíl en  engu að síður Rioja að upplagi með hinum mjúku tannínum sem einkenna Tempranillo-þrúguna.

8.064 krónur.

 

Deila.