Hlutfall kvenna í franskri vínrækt er ekki ýkja hátt. Þeim fjölgar hins vegar stöðugt og er Florence Prud’Homme ágætt dæmi um breytta tíma. Hún er einstæð móðir og rekur af miklum dugnaði vínhúsið Chateau Saincrit í Bordeaux, sem hún festi kaup á árið 2003. Prudh’Homme kemur ekki úr vínræktarfjölskyldu heldur ákvað að láta drauminn rætast, hætta í ágætu starfi og gerast vínbóndi.
Tvö vín frá Saincrit hafa núverið bætst við úrval vínbúðanna og flöskurnar líta nánast eins út. Önnur er hins vegar gulllituðum flöskuhálsi en hin silfurlituðum. Hér erum við með silfurvínið sem er blanda úr þrúgunum Merlot og Cabernet Sauvignon, vín sem hefur legið tólf mánuði á eikartunnum fyrir átöppun.
Þetta er ávaxtaríkur, óeikaður Bordeaux Superieur, ungur plómu- og sólberjaávöxtur, rabarbari og krydd í nefi. Ávöxturinn sprækur og lifandi í munni, mild tannín.
2.090 krónur.