Pinot Grigio-þrúgan er ræktuð víða undir ýmsum nöfnum og getur tekið á sig ýmsar myndir. Ítölsku vínin úr þessari þrúgu eru þegar vel lætur þægileg og full af ítalskri lífsgleði.
Lamberti Santepietre hefur aðlaðandi, sæta angan af melónum, sítrus, hunangi og blómum. Vínið hefur góða fyllingu og lengd og þægilega sýru sem veitir því ferskleika.
1.799 krónur. Mjög góð kaup.