Vínhús Peter Lehmann hefur um árabil verið táknrænt fyrir bæði Barossa-dalinn í Suður-Ástralíu og þrúguna Shiraz eins og Syrah-þrúgan franska er kölluð í Ástralíu.
Peter Lehmann Shiraz 2008 einkennist af dökkum, heitum og þroskuðum ávexti, plómum og kirsuberjum. Þarna er líka súkkulaði og mokkakaffi, vínið er mjúkt og feitt í munni, mjög mjúk tannín en engu að síður þétt í síður.
2.498 krónur. Góð kaup.