Þetta er sannkölluð kókoskaka enda kókos bæði í botni og kremi. Kakan er bæði falleg og ljúffeng.
Botninn:
- 3 bollar hveiti (360 g)
- 1 3/4 bollar (350 g) sykur
- 1 msk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 3/4 bolli ósaltað smjör (170 g) við stofuhita
- 4 egg, eggjarauður og eggjavhítur aðskildar
- 1 tsk vanilludropar
- 2 msk kókoslíkjör (creme de cocoa – má sleppa)
- 1 dós kókosmjólk (392 g/14 oz), haldið fjórðungs bolla til haga fyrir kremið.
- 1/4 tsk vínsteinsduft (cream of tartar)
Kremið:
- 170 g rjómaostur, við stofuhita
- 60 g ósaltað smjör, við stofuhita
- 4 bollar (450 g) sigtaður flórsykur
- 1/4 bolli kókosmjölk
- 200 g kókosmjöl
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður.
Sigtið hveiti, lyftiduft og salt. Geymið.
Þeytið volgt smjörið í stórri skál þar til það er orðið mjúkt. Bætið sykrinum smám saman við smjörið og þeytið þar til blandan er mjúk og létt. Bætið eggjarauðunum út í einni í einu og þeytið á milli. Bætið vanilludropum og kókoslíkjör saman við.
Haldið 1/4 bolla af kókosmjólk til haga fyrir kremið. Bætið hveitiblöndunni og kókosmjölkinni saman við til skiptis og hrærið vel saman.
Stífþeytið eggjahvíturnar ásamt vínsteinsduftinu. Hrærið saman við deigið. Byrjið á því að taka þriðjung af hvítunum og síðan afganginn.
Skiptið deiginu á milli tveggja 23 sm forma sem búið er að klæða með bökunarpappír. Bakið í 30-40 mínútur. Stingið prjón í botnana til að athuga hvort þeir séu tilbúnir. Ef prjóninn kemur þurr upp úr botnunum eru þeir tilbúnir. Leyfið botnunum að kólna áður en kremið er sett á.
Krem:
Þeytið saman rjómaostinn og smjörið. Sigtið flórsykurinn saman við.Bætið síðan 1 msk af kókosmjólkinni saman við í einu og þeytið þar til kremið er orðið mjúkt.
Setjið annan botninn á kökudisk og smyrjið með kremi. Sáldrið kókosmjöli yfir. Setjið hinn botninn ofan á og smyrjið kreminu ofan á botninn og á hliðarnar. Skreytið að ofan með kókosflögum.
