Paella er líklega þekktasti réttur Spánar en rétt eins og ítalski ættinginn „risotto“ þá er Paella ekki eitthvað sem er greypt í stein. Það er hægt að útbúa paellu á margs konar hátt og nota jafnt kjöt sem fisk. Það er hægt að nota margvíslegar tegundir af kjöti og sjávarrétum og það er hægt að blanda kjöti og sjávarréttum saman.