Tedda í Adelaide í Ástralíu sendi Vínótekinu þessar uppskriftir af fimm áströlskum kryddlögum og kryddblöndum (dry rub) sem eru góðar að nota á grillkjötið og jafnvel fiskinn.
Thai lime og sitrónugras kryddlögur
- 3 snyrtir og fínsaxaðir stilkar sítrónugras
- 2 tsk finsaxað limehýði
- 60 ml limesafi
- 1 msk fiskisósa (fishsauce)
- 2 stk. rauður chillipipar
- 1 msk púðursykur
- 1 msk olífuolía
- 1 msk saxað engifer
- Setjið hráefnin í blandara og blandið saman í smá stund.
- Blandan þarf öll að vera smátt söxuð.
- Penslið vel yfir kjöt, kjúkling eða fisk.
- Grillið.
Hvitlauks- og rósmarins kryddlögur
- 4 rif hvítlauk
- 3 stilkar af fersku rósmarin
- 60 ml ólifuolía
- 1 msk balsamik edik
- 1 tsk sjávarsalt
- Nýmulinn svartur pipar
- Blandið saman í skál og notið sem kryddlög fyrir lamb, svínakjöt eða kjúkling.
- Notið afganginn af leginum til þess að pensla kjötið á meðan grillað er
Bar-b-que kryddlögur
- 2 msk Worchestersósa
- 2 mulin hvítlauksrif
- 125 ml bjór
- 2 msk tómatamauk (paste)
- 1 msk púðursykur
- Sjávarsalt
- Nýmulinn svartur pipar
- Blandið saman í skál og hrærið vel saman.
- Notið sem kryddlög fyrir nautakjöt, lamb eða kjúkling.
- Notið afganginn til að pensla hráefnið með á meðan verið er að grilla.
Austurlenskur kryddlögur
- 1 msk fínt saxað ferskt oreganó
- 1 msk fínt saxað tímjan
- 1 msk sesamfræ
- 1 tsk sjávarsalt
Blandið saman í skál og nuddið kjötinu upp úr kryddinu
Piparblanda
- 2 tsk sjávarsalt
- 1 tsk hvit piparkorn
- 1 tsk svört piparkorn
Myljið vel saman í morteli. Bætið við 1 tsk af grænum piparkornum og myljið létt áfram. Nuddið blönduna á grillmetið og grillið.