Þessi skemmtilegi vodka-martini kemur frá Marco á Thorvaldsen. Það er mikilvægt að nota espresso-kaffi úr vél til að ná fallegri froðu ofan á drykkinn en hann kemur úr því sem Ítalir kalla „crema“ í góðu espresso.
4 cl Finlandia vodka
2 cl Kahlúa
1 bolli espresso
dass af súkkulaði sírópi
Hellið öllu í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel og hellið í Martini-glas. Skreytið með kaffibaunum.