Berfættu vínin frá Barefoot Wines í Kaliforníu hafa slegið í gegn í Bandaríkjunum á síðustu árum. Konseptið er einfalt. Létt og svolítið flippuð framsetning, einföld en vel gerð vín, mjög lágt verð. Barefoot hefur verið valið vínvörumerki ársins í Bandaríkjunum og sum vínanna fengið ótrúlega háar einkunnir í virtustu vínmiðlum miðað við verð.
Ég hef stundum rekist á þessi vín í Bandaríkjunum og ávallt orðið hissa á hversu fín þau eru miðað við verðmiðann. Barefoot eru nú í fyrsta skipti fáanleg hér á Íslandi.
Barefoot Merlot er þykkt og mjúkt með angan af mjólkursúkkulaði og þroskuðum plómum og kirsuberjum, það hefur mjúka áferð í munni, með mildum þægilegum tannínum, kalifornískur karakterinn leynir sér ekki. Þetta er ekki vín sem býður upp á flugeldasýningar en jafnframt vín sem manni getur varla annað en líkað ágætlega við.
Með pasta, pizzum og grillkjöti.
1.699 krónur. Mjög góð kaup og hálf stjarna bætist við fyrir verðið.