Castillo Perelada er vínhús í Empordá nyrst í Katalóníu, rétt fyrir sunnan frönsku landamærin. Þetta er enn sem komið er svæði sem fæstum dettur í hug þegar rætt er um spænska víngerð en hefur verið að koma sér á kortið á síðustu árum, ekki síst fyrir tilstilli Perelada.
Castillo Perelada 2008 er vel gert og heillandi Chardonnay-vín, þykkt með hitabeltisávexti og sítrus. Á mörkum þess að vera „nýjaheimslegt“. Alhliða vín, með mat eða eitt og sér.
2.697 krónur. Mjög góð kaup.