Vínhúsið Chateau Margaux í Bordeaux, sem er talið með þeim bestu í heimi, hefur tekið ákvörðun um að setja „þriðja vínið“ frá vínhúsinu á markað. Flest betri vínhús Bordeaux eru með tvo flokka af vínum. Annars vegar fyrsta vínið eða „chateau“-vínið og hins vegar „second“-vín sem selt er undir öðru nafni. Annað vín Margaux hetiir þannig Pavillon Rouge.
Í annað vínið eru notaðar þær þrúgur sem ekki ná þeim gæðum sem nauðsynleg eru fyrir fyrsta vínið og er t.d. oft um þrúgur af yngri vínvið að ræða.
Ekki hefur enn verið tilkynnt hvað nýja vínið mun heita.