Danir sárir vegna Michelin

Þrátt fyrir að Kaupmannahöfn státi enn af fleiri Michelin-stjörnum en nokkur önnur borg Norðurlanda eru Danir sárir yfir útreiðinni í nýjustu útgáfunni af veitingahúsavísinum Michelin. Mikið hafði verið rætt um að veitingahúsið Noma myndi ná hinni eftirsóttu þriðju stjörnu en sú varð hins vegar ekki raunin. Þá hafði einnig verið talið líklegt að veitingahúsið Geranium sem Rasmus Kofoed opnaði nýlega myndi fá sína fyrstu stjörnu en það hafði verið skilgreint sem „rísandi stjarna“ á síðasta ári. Kofoed er talinn með bestu kokkum Danmerkur og sigraði í keppninni Bocuse d’Or fyrr á þessu ári. Þá misstu veitingahúsi Bo Bech og MR stjörnur sínar.

Deila.