Vín þurfa ekkert að vera alvarleg sem endurspeglast í nafni þessa vín. Plaisir Frivole má snara yfir á íslensku sem kærulaus eða áhyggjulaus ánægja og þetta vín er einhvern fullt af sumarlegri gleði.
Þetta er hvítvín frá litlu en virtu vínhúsi Couillaud-bræðra í Loire-dalnum í Frakklandi sem heitir Chateau de la Ragotiere og er þekktast fyrir Muscadet-vín en þau eru þurr og sýrumikil. Í Plaisir Frivole er hins vegar brugðið á leik með hluta af Chardonnay-uppskerunni.
Þetta er sætt og létt vín þar sem víngerjunin hefur verið stöðvuð þegar lögurinn náði 8,5% og því mikið af sykri eftir í þrugunum. Í nefinu ferskir ávextir, sætur greip, sæt vínber, apríkósur og melóna. Mjög ljúft og ferskt með ávaxtramikilli sætu. Minnir á nýpressaðan þrúgusafa sem á eftir að gerjast. Hefur þann ferskleika í bragði. Skemmtilega öðruvísi sumarvín.
1.570 krónur. Líka til í hálfflöskum á 1.099 krónur.