Yalumba Y Series Cabernet Sauvignon 2008

Yalumba Y Series eru vín frá Suður-Ástralíu frá vínhúsinu Yalumba.

Þetta er ágætis Cabernet, dökkur sólberjaávöxtur, svartar ólívur og trönuberjasafi í nefi, nokkuð sýrumikið í munni, með ágætlega þéttum ávexti. Með bragðmiklu kjöti, þess vegna grilluðu í BBQ-sósu, eða með sætu íslensku jólameðlæti.

2.490 krónur.

 

Deila.