Leffe Brune

Leffe Brune er einn af hinum klassísku klausturbjórum Belgíu, kenndur við klaustrið Notre Dame de Leffe en er nú bruggaður af InBev brugghúsinu í Leuven í Belgíu. Þetta er dökkur og mikill bjór, sætur, ávaxtaríkur og maltmikill. Mikil mýkt og áfengi ekki áberandi. Frábært dæmi um góðan belgískan bjór. Til að sötra einan og sér eða þá með mat, t.d. kjöti og rótargrænmeti eða önd með rifsberjasósu.

Deila.