Þegar vín eru annars vegar þýðir skammstöfunin GSM að viðkomandi vín sé blanda úr þrúgunum Grenaceh, Syrah og Mourvédre. Þessi skammstöfun skaut fyrst upp kollinum í Ástralíu og hefur í hugum margra fest sig í sessi yfir vín sem eru ávaxtarík og stundum frekar sæt.
Þessi tiltekna þrúgublanda er hins vegar ekki ný uppfinning. Þetta eru allt dæmigerðar suður-franskar þrúgur sem um aldabil hafa verið notaðar í blöndur og eru oft uppistaða vína frá t.d. Rhone, gjarnan í bland við þrúguna Cinsault.
Þetta vín frá Vidal-Fleury, framleitt úr þrúgum frá Miðjarðarhafssvæðinu Languedoc, notar þessa áströlsku skilgreiningu en er hins vegar að öllu öðru leyti dæmigert, nútímalegt, suður-franskt vín. Heitur dökkrauður og svartur berjaávöxtur einkennir angan vínsins, þroskuð kirsuber, jarðarber og rifsber, þurrkaðar kryddjurtir áberandi, timjan og rósmarín. Þurrt með þéttri sýru og svolítið tannískt, farið að þroskast og mýkjast á þægilegan máta. Matvænt.
Vín sem hentar t.d. með lambi og grísakjöti með kryddjurtum, einnig pottréttum.
2.199 krónur. Góð kaup.