Vínin frá Lamothe-Vincent hafa verið til umfjöllunar áður en þau hafa vakið athygli fyrir frábært hlutfall verðs/gæða. Það er engin breyting á því í þessum 2008 árgangi af Heritage.
Nokkuð lokað í nefi, dökk berjaangan, sólber, þroskuð kirsuber og vottur af reyk. Gefið smá tíma til að opna sig. Ágætlega massað í munni með þéttum, mjúkum tannínum og mildri eik.
2.499 krónur. Góð kaup.