Louis Jadot Beaujolais Villages 2010

Beaujolais er eitt af þekktustu víngerðarsvæðum Frakklands, staðsett strax suður af Búrgund. Það eru fyrst og fremst rauðvín sem Beaujolais er þekkt fyrir og þau eru framleidd úr þrúgunni Gamay.

Þetta er klassískt og gott Beaujolais frá hinu ágæta vínhúsi Louis Jadot en vínið er í milliflokki Beaujolais-vínanna, þ.e. þeirra er fá að skeyta Villages aftan við heitið. Í nefi angan af rauðum berjum, þroskuðum jarðarberjum og trönuberjum, örlítið kryddað. Ungt og ferskt í munni, afskaplega þægilegt, ávöxturinn mjúkur en þéttur í sér. Það er ágætt að bera Beaujolais-vínin fram við örlítið lægra hitastig en stofuhita, örlítið kæld, en ekki köld. Svona um 18 gráður. Hentar vel með ljósu kjöti, ostum og jafnvel feitum fiski á borð við lax og bleikju.

2.490 krónur.

 

Deila.