Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma.
Matarmarkaðurinn er haldinn í samvinnu við Beint frá býli og er í tilefni af hinum alþjóðlega Terra Madre-degi. Það eru Slow Food samtökin sem standa að þeim degi og vilja með honum vekja athygli á ferskri og hreinni matvöru um allan heim.
Eftirfarandi framleiðendur verða með bása á matarmarkaðnum:
MATARBÚRIÐ; www.hals.is – Doddi og Lísa mæta með grasfóðrað holdanautakjöt (aberdeen angus og galloway) sem er bragðmikið og meyrt þar sem það fær að hanga í 3 vikur+. Úrval af carpaccio, nautadjörki og bratwurst pylsum. Lísa er einnig með frábært úrval af kryddsultum (chutney) heimalöguðu sinnep og sultum.
SOGN Í KJÓS; Hamborgarar, beef jerky, carpaccio, reykt nautakjöt og ýmsar fleiri nautakjötsafurðir, sultur, kæfa. Sveina og Snorri með ferskt nautakjöt, carpaccio, hamborgara, beef jerky og fleiri nautaafurðir úr eigin vinnslu.
KIÐAFELL í KJÓS; Tvíreykt hangikjöt eins og það gerist best – jóla jóla.
HVANNARLAMB; Halla frá Ytri- Fagradal mætir með lambakjötið sitt, en sérstaðan fellst í því að lömbin hafa verið fóðruð á hvönn sem skilar sér í bragðinu.
BRAUÐ OG KÖKUGERÐIN; Hvammstanga : Svava sér um að framleiða hið frábæra hrökkkex sem er svo vinsælt að það selst vanalega um leið og það kemur í hillurnar. Hrökkur og Stökkur heitir þetta. Einnig kemur með úrval af jólabakstri.
SÆLUOSTAR ÚR SVEITINNI ; Sæluostar úr sveitinni eru framleiddir af vinkonunum Stellu Jórunni A. Levy og Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur í Vestur-Húnavatnssýslu. Hér er á ferðinni svokallaður ferskostur en hann er búinn til í fimm bragðtegundum. Þess má geta að þær nota lífræn ræktuð krydd í ostana. Komið við og prófið þessa ljúffengu osta – þeir eru hreinasta lostæti. Jólaútgáfur verða á boðstólum.
SVANDÍS KANDÍS; www.kandis.is. Frábærir handgerðir brjóstsykursmolar úr gæða hráefnum. Jólamolinn er epli og kanil og er alveg frábær enbananalakrís og stjörnuanís er ekki verri .Namm namm – gamaldags góðgæti.
ERPSSTAÐIR Í DÖLUM; www.erpsstadir.is. Skyr, rjómi, ís, ostur og skyrkonfekt. Þorgrímur og Helga er skínandi dæmi um nýja kynslóð bænda sem rækta, þróa og framleiða eigin vörur úr eigin hráefni.
MÓÐIR JÖRÐ; www.vallanes.net. Koma með góðar kryddsultur, kex ofl. -kannski jólatré og tvær nýjar vörur fyrir jólin.
URTA ; Á boðstólum verður úrval af jurtate allt unnið úr íslenskum jurtum. Einnig sýrop, sultur og frábær bragðbætt sölt til að nota á jólasteikina.
RABARBÍA ; Frá Langamýri á Skeiðum koma þessar frábæru og frumlegu rabarbaravörur – Rabarbarakaramella, sulta, og fíflasýróp sem er hin besta íssósa..
PYLSUMEISTARINN ; Frábært úrval af kjötmeti
SANDHOLT ; Gæða konfekt og jóla Panettone
VÍNEKRAN ; Stephane mætir með ráðgjöf varðandi jólavínin en einnig Foie gras frá Alsace.
BJARTEYJARSANDUR – Arnheiður mætir með kofareyktar bjúgur og hennar heimsfrægu kæfu
JÓN KRISTINSSON – Einn sá albesti reykti lax og silungur sem hægt er að fá ásamt vestfirskum harðfisk
KAFFITÁR -Verða með kynningu á Hátíðakaffi Kaffitárs 2011 kynninginn fer fram á sérstakan máta það sem við köllum Helling (slow brew). Einnig munu þau bjóða gestum og gangandi til kaups Hátíðakaffi, Grýlukanilkaffi, Súkkulaðihúðarkaffibaunir og Biscotti kökur.
BÚRIÐ ; Verðum með nýjar jólavörur þar á meðal „Jólaglöggur“ sem er grunnurinn að góðum jólaglögg. Bráðum koma ostajólin!