Montes Chardonnay Reserve 2010

Montes Chardonnay Reserve er hvítvín sem kemur frá svæðinu Curico í Chile en það teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile

Þetta er klassísk ávaxtasprengja frá Chile, suðrænn og sætur ávöxtur í nefi, ananas, lime, ferskja og mjög hófstillt sviðin eik og rjómi. Ferskt með góðri sýru og þægilega sætum ávexti í munni.

1.799 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.