Bodegas Portia Ebeia 2009

Ribera del Duero er eitt allra besta framleiðslusvæði spænskra vína og stendur fyrir höfug og mikil vín úr þrúgunni Tempranillo en hún gengur þar undir nafninu Tinto Fino.

Ebeia er vín sem nýlega var hafin framleiðslu á – þetta er fyrsti árgangurinn –  og er afrakstur mikilla fjárfestinga Faustino-Martinez-fjölskyldunnar á svæðinu. Þessi mikla vínfjölskylda, sem flestir þekkja út af Faustino-vínunum frá Rioja, hefur verið að kaupa ekrur í Ribera um nokkurt skeið og byggt upp nýtt hátæknivætt víngerðarhús, teiknað af breska arkitektinum Norman Foster.

Ebeia er ódýrasta vínið sem kemur frá þessu víngerðarhúsi, Dökkt, í nefi sætur rauður kóngabrjóstsykur, sultaðar plómur, jörð. Í munni sætur, áfengur ávöxtur, tannískt og ungt. Nokkuð eikað. Með nautakjöti.

2.190 krónur. Góð kaup.

 

Deila.