Cepparello 2006

Cepparello er hreint Sangiovese og þó að það sé ræktað á ekrum Isole e Olena í hjarta Chianti Classico-svæðisins þá er það engu að síður flokkað sem IGT-vín.

Þetta er öflugur og elegant Cepparello, kröftugur kirsuberja/sólberjaávöxtur, sætur sultaður eða öllu frekar sírópsþykkur, nokkuð eikað, þarna eru kaffibaunir og ristaður viður í forgrunni. Vel strúktúrerað og tannískt í munni með djúpum bragðmassa.Þarf smá tíma til að opna sig, það borgar sig að umhella víninu, en það er þó virkilega aðgengilegt nú þótt það muni geta þroskast í all nokkur ár. Vel strúktúrerað og tannískt í munni með djúpum bragðmassa.

7.590 krónur.

 

Deila.