Ruffino Riserva Ducale 2009

Chianti-vínin frá Ruffino eiga sér langa sögu á Íslandi og eru eflaust fyrsta Chianti-upplifun margra sem nú eru á miðjum aldri.

Vínið hefur þurrt og kryddað yfirbragð, sprittaður dökkur berjaávöxtur, eik. Þétt, sýrumikið og tannískt. Klassískur Chianti Classico en svolítið hlédrægur í þetta skiptið.

2.999 krónur.

 

 

 

Deila.