Peter Lehmann The Futures Shiraz 2007

 

Þetta Barossa-rauðvín frá Peter Lehmann er eitt af þessum yndilegu áströlsku Shiraz-vínum, sem eru svo þétt og þykk að það liggur við að hægt sé að borða þau með skeið. Kryddað í nefi kjötmikið, reykur og sultaðar plómur og sólber. Massað og mikið í munni. Ræður við flest allt, en þarf bragðmikinn mat til að halda í við sig. Rautt kjöt og villibráð.

2.999 krónur.

 

Deila.