Canepa Cabernet Sauvignon 2010

Þetta er ungur og ferskur Cabernet Sauvignon úr Classico-línunni frá Canepa en það eru ódýrustu vínin sem þetta vínhús í Chile framleiðir.

Hreinn og tær sólberjasafi í nefi, ferskt, örlítið kryddað með negul. Ungt og tannískt í munni.

1.590 krónur. Ágætis kaup.

 

 

Deila.