Marques de Caceres var stofnað um 1970 af Forner-fjölskyldunni sem hafði flúið land í spænsku borgarastyrjöldinni og sest að í Frakklandi. Þar hafði hún endurreist þekkt chateau í Bordeaux en vildi snúa aftur til heimalandsins og hefja þar vínframleiðslu.
Marques de Caceres hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt af traustari vínhúsum Rioja. Þetta Crianza-vín er dökkt út í gegn, heitur dökkur ávöxtur, bláber, sólber en einnig karamella, vanilla, nokkuð sýrumikið. Ágætis matarvín.
2.390 krónur.