Marques de Casa Concha Cabernet Sauvingon 2008

Casa Concha-línan frá Concha y Toro í Chile eru alla jafna kröftug og mikil vín. Þetta vín úr þeirri línu er Cabernet Sauvignon frá Maipo-dalnum fyrir utan Santiago  blandað smá Carmenere og Petit Verdot.

Þetta er hörku Cabernet, dökkur, djúpur með myntukrydduðum sólberjaávexti. Stórt, massað í munni, kröftugur ávöxtur og öflug en engu að síður mjúk tannín sem gefa víninu festu og bit. Rautt kjöt og villibráð.

2.699 krónur. Mjög góð kaup.

 

Deila.