Þetta er sannkallaður, fullhlaðinn megaborgari og varla að það þurfi meðlæti með. Það er hægt að nota keypt hakk en auðvitað er best að velja góðan kjötbita og hakka það síðan sjálfur.
Borgararnir
- 800 g hakkað nautakjöt
- 1 laukur, fínsaxaður
- 1 egg
- 1 msk Dijonsinnep
- 1 brauðsneið, mulinn fínt niður
- 3 msk nýrifinn parmesanostur
- 1/2 tsk chili-flögur
- 1/2 tsk Maldonsalt
- 1/2 tsk mulinn svartur pipar
Blandið öllu nema kjötinu vel saman í skál. Setjið hakkað kjötið í skálina og blandið vel en varlega saman við – það má ekki breyta hakkinu í fars. Mótið 4 x 200 g hamborgara eða 6 x 150 g hamborgara. Geymið í kæli þar til þeir eru eldaðir.
Þá þarf næst
- 4-6 heimabökuð hamborgarabrauð
- klettasalat
- niðursneiddur tómatur
- aioli eða majonnes
- dós af grilluðum paprikum í olíu
- Dijon-sinnepi
Steikið eða grillið hamborgarana. Skerið brauðin í tvennt. Smyrjið vel af aioli á botninn og setjið síðan lúku af klettasalati ofan á og sneið af tómat. Þá kemur hamborgarinn og góður skammtur af griluðum paprikum. Smyrjið lokið með Dijon-sinnepi og lokið.
Lumar þú á frábærri hamborgarauppskrift? Sendu okkur hana á vinotekid@gmail.com