Valdibella er samyrkjubú tíu sikileyskra bænda sem allir stunda lífræna ræktun á þrúgunum sínum. Þetta rauðvín er blanda til helminga úr sikileysku þrúgunni Nero d’Avola og hinni frönsku Cabernet Sauvignon. Vínið hefur dökka angan með sólberjum og plómum, léttkryddaða. Nero meira áberandi í upphafi en síðan tekur Cabernet völdin og verður ríkjandi, stífur, sýrumikill og sólberjaríkur. Ágætlega þétt, hreinn ávöxtur.
2.689 krónur.