Það er ekki algengt að sjá Gewurztraminer frá Chile, jafnvel ekki utan Evrópu. Vínhúsið Cono Sur hefur hins vegar ekki alltaf farið troðnar slóðir og var m.a. fyrsta vínhús Chile til að hefja ræktun á þrúgunni Viognier.
Þetta er afbragðsgóður Gewurztraminer gerður úr þrúgum ræktuðum í héraðinu Bio Bio, sem hefur ekki farið mikið fyrir hér. Það er með syðstu vínhéruðum Chile og þar sem þetta er suðurhvelið verður loftslagið svalara eftir því sem sunnar dregur.
Einkenni vínsins eru dæmigerð fyrir Gewurztraminer en samt er karakterinn allt annar en í þeim frá Alsace, helsta ræktunarhéraði þrúgunnar í Frakklandi. Þétt og fersk angan af sítrus, apríkósum og ekki síst blómum, míneralískt. Mjúkt og þægilegt, hefur yfir sér þægilegan, léttan ferskleika.
1.850 krónur. Mjög góð kaup. Það er ekki hægt annað en að gefa fjórar fyrir svona vín á svona verði.