Il Poggione er með bestu vínhúsum Montalcino í Toscana og við höfum áður fjallað um bæði Rosso di Montalcino og Brunello di Montalcino. Þetta er þriðja vínið í þrennunni sem kom hingað á markað frá þessu flotta húsi nú i sumar. Það ódýrasta en engu að síður hrikalega flott í sínum verðflokki. Þetta er alvöru Toskana-vín þótt Sangiovese-þrúgan sér hér blönduð hinni frönsku Merlot.
Rauð ber, krydduð með smá fjósi, reyk og leðri. Þétt í munni, vel uppbyggt, mjúk en alltumlykjandi tannín. Mjög gott matarvín. Reynið t.d. með góðu lasagna.
2.395 krónur. Mjög góð kaup.