Tavernelle Cabernet Sauvignon 2006

Castello Banfi er með bestu vínhúsum Montalcino en auk þess að framleiða afbragðsgóðan Brunello gerir vínhúsið nokkur önnur einstaklega frambærileg vín úr „erlendum“ þrúgum. Tavernelle er hreint Cabernet Sauvignon, þrúgurnar ræktaðar á hæð við þorp með sama nafni syðst í Montalcino.

Þetta vín sýnir og sannar að Cabernet á svo sannarlega erindi á þessu ræktunarsvæði. Dökkt og djúpt á lit, lítið farið að sýna aldur. Angan af eik, tóbaki og dökkum berjum, mjög þroskuðum sólberjum og bláberjum. Þarna er líka kaffi og angan af kryddi. Í munni öflugt og þéttriðið, kröftug en mjúk tannín, góður bragðmassi, nokkuð kryddað. Flottur Cabernet úr heitu loftslagi, með ítölskum elegans. Enn töluvert ungt, á mörg góð ár eftir.

Þetta er vín fyrir góða steik, manni dettur í hug T-Bone eða Ribeye. Hvers vegna ekki nautasteik Fiorentina að hætti þeirra í Toskana? Einnig með þurrum ostum á borð við Parmigiano.

3.799 krónur. Góð kaup.

Deila.