Það er kominn nóvember, verslanir eru að fyllast af jólaskrauti. Jólabjórnarnir fara nú líka að hefja innreið sína. Í gær gekk skrúðganga niður miðbæinn að boða komu Tuborg-jólabjórsins og á fimmtudagskvöldið var mikið hóf á 1919 þar sem að hinn belgíski lagerbjór Stella Artois var kynntur til leiks í jólaútgáfunni sinni.
Brugghúsið Den Hoorn í Leuven í Belgíu á rætur að rekja aftur til ársins 1336. Stella Artois var upphaflega bruggaður í Leuven sem jólabjór og átti aðeins að vera í dreifingu yfir hátíðarnar. Bæjarbúum Leuven var gefin hátíðarflaska af bjórnum en vinsældirnar urði slíkar að ákveðið var að leyfa neytendum að njóta hans allan ársins hring.
Til að minnast þessarar tengingar við jólin er Stella Artois framleiddur í sérstakri 750ml viðhafnarúgáfu fyrir jólin, flösku sem sækja innblástur sinn í hina klassísku Stella Artois flösku, sem sker sig svo sannarlega úr. Flaskan er glæsileg og eiguleg með kampavínstappa.

