Pieropan La Rocca 2010

La Rocca er einnar ekru hvítvín frá fjölskyldunni Pieropan í Soave á Norður-Ítalíu. Ekran er í hjarta héraðsins Soave Classico, ofan við kastalann sem trónir yfir þorpinu Soave og dregur  hún nafn sitt af hæðinni sem hann er byggður á, Monte Rocchetta. Vínið er um margt einstakt fyrir þetta svæði, hreinræktað vín úr þrúgunni Garganega sem hefur verið látið liggja á eik, sem hafði ekki sést áður á þessum slóðum þegar vínið leit fyrst dagsins ljós árið 1978. Nú er það yfirleitt flokkað með bestu hvítvínum Ítalíu.

Þetta er hrikalega flott vín, ekki bragðsprengja heldur þétt og allt í finleikanum. Angan af þurrkuðum suðrænum ávöxtum, þroskuðum eplum og sítrus, míneralískt og svolítið hnetukennt og kryddað. Eikin vart greinanleg, rennur saman við aðra þætti á fullkominn hátt. Í munni langt, mjög þétt, djúpt og flókið. Alvöru vín. Með humarpasta, risotto eða grilluðum fiski.

4.350 krónur. Góð kaup.

Deila.