Carmen Cabernet Sauvignon Gran Reserva 2010

Þessi Cabernet kemur frá vínhúsinu Carmen í Chile, vel gerður en ekki mjög karaktermikill. Þéttur og þroskaður berjasafi, sólber og bláber, nokkur mynta, reykur og jörð. Mjúkur, þykkur og sætur ávöxtur í munni. Súkkulaði og vanilla. Með nauti og lambi.

2.650 krónur. Ágætis kaup.

Deila.