Pieropan er eitt besta vínhús Soave í Veneto á Ítalíu og framleiðir einhver bestu hvítvín landsins. Ruberpan er hins vegar fyrsta rauðvínið frá þeim og er ekran sem þrúgurnar eru ræktaðar á á Valpolicella-svæðinu. Vínviðurinn var gróðursettur árið 2000 og fyrstu árgangarnir eru nú að koma á markaðinn en þetta er vín sem búast má við að muni skipa sér í toppbaráttuna í Valpolicella þegar fram í sækir. Ekki kraftajötunn enda eru vín Pieropan fremur þekkt fyrir elegans og fínleika. Fágaður sólberja- og kirsuberjaávöxtur, kryddað, nokkuð míneralískt, hófstillt eik, smá sedrusviður, þétt en mjúk tannín. Mjög vel gert.
2.995 krónur.