Ástralir nota heitið Shiraz yfir Syrah en þetta nýsjálenska vín frá Hawke’s Bay á austurströn Norðureyju heldur sig við franska heitið Syrah enda er það nær Frakklandi í stílnum en Ástralíu, það er meira að segja smá Viognier í blöndunni.
Mikil „sveit“ í nefinu, tað og mykja, sultuð ber, plómur. Sætur og silkimjúkur ávöxtur í munni, reykur og krydd, góð fylling, mjúk tannín. Athyglisvert vín. Reynið með mildri villibráð s.s. villigæs eða lambakjöti.
2.929 krónur.