Winzenberg er ein af ekrunum í Alsace í norðausturhorni Frakklands sem er skilgreind sem Grand Cru og er nafn hennar því sérstaklega tilgreint á flöskumiðanum.
Angan er þykk og ávaxtarík, suðrænir ávextir, þroskaðir og sætir, ferskjur og epli, míneralískt, jafnvel smá púður, með ferskum sítrus, lime, greip. Þykkt í munni, bjart og með góðri sýru. Enn ungt og ætti að þola geymslu í all nokkur ár. Þægilegt matarvín, reynið t.d. með humri eða öðrum skelfiski.
3.399 krónur.