Lamothe Vincent Sauvignon Blanc 2011

Það vill stundum gleymast að þrúgan Sauvignon Blanc á sínar rætur í Frakklandi og er ekki bara algeng í Loire heldur ein helsta hvítvínsþrúga Bordeaux í suðvesturhluta landsins.

Þetta er skarpur og þægilegur Sauvignon frá því svæði, nánar tiltekið Éntre-deux-Mers, grösugur með berja, sítrus og kryddjurtaangan, vottur af steinselju. Sýruríkt og ferskt, ágætis fylling. Fínn fordrykkur eða með t.d. grillaðri bleikju og sítrónu eða sítrusmarineruðu sjávarfangi.
1.999 krónur.

Deila.