Inycon er hvítvín frá Sikiley í þriggja lítra kassa eða „belju“ gert úr þrúgunum Chardonnay og Pinot Grigio. Þetta er þokkalegasta hvítvín, í nefi epli, perur, apríkósur og smjör, nokkuð feitt, mild sýra og farið að sýna smá þroska. Berið fram vel kælt.
5.999 krónur eða sem samsvarar um 1.500 krónum á 75 cl. flösku.